Kristni
til baka

Sálmarnir 102

1Drottinn, heyrðu bæn mína! Hlustaðu á ákall mitt!

3Snúðu ekki baki við mér á ógæfutímum. Hneigðu eyra þitt að mér og svaraðu mér fljótt.

4Ævi mín líður svo hratt, dagarnir fljúga hver af öðrum. Heilsan er búin, hjartað er sjúkt – ég er eins og visið strá. Maturinn er bragðlaus, ég er hættur að finna bragð.

6Ég er ekkert nema skinn og bein.

7Ég er líkastur pelikan í eyðimörk eða uglu í húsarúst.

8Ég ligg andvaka og styn eins og einmana fugl á þaki.

9Óvinir mínir hæða mig og spotta dag eftir dag.

10Fæða mín er aska, ekki brauð, og drykkur minn blandast tárum mínum. Þú ert mér reiður Drottinn og hefur varpað mér burt frá þér.

12Líf mitt líður burt eins og kvöldskuggi. Ég visna eins og gras

13en þú Drottinn ríkir í dýrð þinni að eilífu. Þinn orðstír mun lifa frá kynslóð til kynslóðar.

14Ég veit að þú munt koma og vægja Jerúsalem. – Gerðu það núna! – Efndu loforð þitt um hjálp.

15Því að þjóð þín elskar hvern stein í múr hennar og jafnvel rykið á strætum hennar.

16Þjóðirnar og konungar þeirra skjálfi fyrir Drottni og hans miklu dýrð,

17því að Drottinn mun endurreisa Jerúsalem og birtast þar í dýrð!

18Hann hlustar á bænir fátæklinganna, gefur gaum að beiðni þeirra.

19Þetta hef ég skráð til þess að komandi kynslóðir lofi Drottin fyrir öll hans verk. Fólk sem enn hefur ekki séð dagsins ljós mun vegsama hann.

20Segið þeim að Drottinn leit niður frá musteri sínu á himnum.

21Hann heyrði stunur þjóðar sinnar í ánauðinni – hún var dauðans matur – og hann frelsaði hana!

22Þess vegna streyma þúsundir til musteris hans í Jerúsalem og lofa hann og vegsama um alla borgina. Konungar jarðarinnar eru í þeim hópi.

24Hann hefur tekið frá mér lífskraftinn og stytt ævi mína.

25En ég hrópaði til hans: „Þú, Guð sem lifir að eilífu, láttu mig ekki deyja fyrir aldur fram!

26Í upphafi lagðir þú undirstöður jarðarinnar og himnarnir eru verk handa þinna.

27Þau munu hverfa en þú ert að eilífu. Þau fyrnast, líkt og slitin föt sem lögð eru til hliðar.

28En þú ert hinn sami og ár þín taka aldrei enda.

29En afkomendur okkar munu lifa og þú munt varðveita þá, kynslóð fram af kynslóð.“

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath