Sálmarnir 101
1Ég vil syngja um réttlætið og miskunnsemina. Ég vil lofsyngja þér, ó Guð!
2Ég, konungurinn, vil kappkosta að lifa heiðarlega og ganga um heimili mitt í grandvarleik – hjálpaðu mér til þess!
3Gefðu mér að forðast allt sem er gróft og ljótt – að fyrirlíta hið illa.
4Já, ég vil ekki vera sjálfselskur og vondur.
5Ég umber ekki þá sem baktala nágranna sinn, og hroka og dramb mun ég ekki þola.
6Ég leita uppi réttláta menn í landinu og kalla þá til starfa, að þeir búi hjá mér, – þeir einir sem grandvarir eru.
7Svikara og lygara þoli ég ekki í mínum húsum.
8Ég þagga niður í illmennunum í landinu og útrými úr borginni öllum óguðlegum.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath