Markús 16
1Kvöldið eftir, þegar helgidagurinn var liðinn, keyptu María Magdalena, Salóme og María móðir Jakobs, ilmsmyrsl til að smyrja líkama Jesú.
2Við sólarupprás morguninn eftir fóru þær með smyrslin út að gröfinni.
3Á leiðinni ræddu þær um hvernig þær ættu að velta steininum frá dyrunum – hann var stór og mjög þungur.
4En þegar þær nálguðust, sáu þær að inngangurinn var opinn – steininum hafði þegar verið velt frá!
5Þær gengu inn í gröfina, en brá mjög er þær sáu ungan mann, hvítklæddan, sitja þar inni, hægra megin.
6„Verið óhræddar,“ sagði engillinn. „Þið leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta, er ekki svo? Hann er upprisinn. Hann er ekki hér. Sjáið, þarna lögðu þeir hann.
7Farið nú og segið lærisveinum hans – og Pétri: „Hann fer á undan ykkur til Galíleu og þar munuð þið hitta hann eins og hann sagði.“ “
8Konurnar flýðu skelfingu lostnar frá gröfinni og komu ekki upp nokkru orði.
9Upprisa Jesú átti sér stað snemma á sunnudagsmorgni og María Magdalena sá hann fyrst allra (hún hafði áður haft sjö illa anda sem Jesús rak út af henni.)
10Hún fór og fann lærisveinana samankomna, grátandi af hryggð. „Ég hef séð Jesú!“ hrópaði hún. „Hann er lifandi!“ En þeir trúðu henni ekki.
12Seinna þennan sama dag birtist Jesús tveim mönnum sem voru á gangi frá Jerúsalem, á leið upp í sveit. Í fyrstu þekktu þeir hann ekki, því hann hafði breyst í útliti.
13Þegar þeir loks áttuðu sig á hver hann var, flýttu þeir sér aftur til Jerúsalem og sögðu hinum frá, en þeir trúðu þeim ekki heldur.
14Seinna, þegar lærisveinarnir ellefu sátu saman til borðs, birtist Jesús þeim. Hann ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og þrjósku – að þeir skyldu ekki vilja trúa þeim, sem höfðu séð hann upprisinn.
15Síðan sagði hann: „Farið út um allan heiminn og boðið öllum fagnaðarerindið.
16Þeir sem þá trúa og verða skírðir, munu frelsast, en þeir sem hafna trúnni verða dæmdir.
17Þeir sem trúa, skulu fá kraft minn til að reka út illa anda og tala tungum.
18Þeir munu jafnvel geta handleikið höggorma án þess að bíða tjón, og þótt þeir drekki eitthvað eitrað, mun þá ekki saka. Þeir skulu einnig leggja hendur yfir sjúka og lækna þá.“
19Eftir að Drottinn Jesús hafði talað til þeirra, var hann numinn upp til himins og settist til hægri handar Guði.
20En lærisveinarnir fóru af stað og predikuðu alls staðar. Drottinn var með þeim og staðfesti það sem þeir sögðu, með kraftaverkum, sem fylgdu orðum þeirra.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath