Matteus 28
1Þegar birti að morgni sunnudagsins fóru María Magdalena og María hin út til að líta eftir gröfinni.
2Skyndilega varð mikill jarðskjálfti! Engill Drottins kom niður af himni, velti steininum frá grafardyrunum og settist á hann.
3Andlit engilsins lýsti sem elding og klæði hans voru skínandi björt.
4Þegar verðirnir sáu hann skulfu þeir af hræðslu og féllu í yfirlið.
5Engillinn sagði þá við konurnar: „Verið óhræddar! Ég veit að þið leitið að Jesú hinum krossfesta,
6en hann er ekki hér. Hann er upprisinn eins og hann sagði. Komið og sjáið hvar líkami hans lá.
7En flýtið ykkur nú og segið lærisveinunum að hann sé risinn upp frá dauðum og að hann fari á undan þeim til Galíleu, til að hitta þá þar. Þessu átti ég að skila til ykkar.“
8Konurnar urðu óttaslegnar en þó glaðar og þær flýttu sér frá gröfinni til að flytja lærisveinunum skilaboð engilsins.
9En skyndilega mættu þær Jesú og hann heilsaði þeim! Þær féllu til jarðar frammi fyrir honum, gripu um fætur hans og tilbáðu hann.
10„Verið óhræddar!“ sagði hann, „farið og segið bræðrum mínum að halda þegar til Galíleu og þar munu þeir sjá mig.“
11Meðan konurnar voru á leið inn í borgina fóru sumir varðmannanna, sem gætt höfðu grafarinnar, til æðstu prestanna og sögðu þeim hvað gerst hafði.
12Allir leiðtogar Gyðinga voru kallaðir saman til fundar. Þar var ákveðið að múta vörðunum til að segja að þeir hefðu sofnað, og um miðja nótt hefðu svo lærisveinar Jesú komið og stolið líkinu.
14„Þið þurfið engu að kvíða,“ sögðu leiðtogarnir. „Ef landstjórinn fréttir þetta tölum við máli ykkar við hann og friðum hann.“
15Verðirnir tóku þá við mútufénu og gerðu eins og þeim hafði vefið sagt. Frásaga þeirra barst út á meðal Gyðinga og er henni jafnvel trúað enn í dag.
16Eftir þetta fóru lærisveinarnir ellefu til Galíleu, til fjallsins þar sem Jesús sagðist mundu hitta þá.
17Þegar þeir sáu hann þar, tilbáðu þeir hann – þó sumir væru ekki vissir um að þetta væri sjálfur Jesús.
18Síðan ávarpaði hann lærisveinana og sagði: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu.
19Farið því og gerið allar þjóðir að mínum lærisveinum.
20Skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið ykkur. Takið eftir! Ég er með ykkur alla daga allt til enda veraldarinnar.“
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath