Hebreabréfið 1
1Fyrr á tímum talaði Guð með ýmsu móti til forfeðra okkar fyrir milligöngu spámannanna (til dæmis í sýnum, draumum eða jafnvel augliti til auglitis) og sagði þeim þannig smátt og smátt frá fyrirætlunum sínum.
2Á okkar dögum hefur hann hins vegar talað til okkar með tungu sonar síns, sem hann hefur gefið alla hluti. Sonarins vegna skapaði hann heiminn og allt sem í honum er.
3Sonur Guðs endurspeglar dýrð Guðs og allt, sem sonurinn er og gerir, ber þess vitni að hann er Guð. Hann ríkir yfir alheimi með orðum sínum. Hann er sá sem dó til að hreinsa okkur og sýkna af ákæru syndarinnar og settist síðan í hið æðsta heiðurssæti við hlið Guðs almáttugs á himnum.
4Þannig varð hann englunum mun æðri og það sannar líka nafnið sem faðir hans gaf honum: „Sonur Guðs“, en það nafn er langtum æðra en nöfn og titlar englanna.
5Guð hefur aldrei sagt svo við neinn af englum sínum: „Þú ert sonur minn og í dag gef ég þér heiður þann og tign sem fylgir nafni mínu.“ Þetta sagði hann hins vegar við Jesú og öðru sinni sagði hann: „Ég er faðir hans; hann er sonur minn.“ Þegar Guðs eingetni sonur kom til jarðarinnar sagði hann enn fremur: „Allir englar Guðs skulu tilbiðja hann.“
7Um engla sína segir Guð, að þeir séu sendiboðar, skjótir sem vindurinn og líkir eldslogum,
8en um son sinn segir hann: „Ríki þitt, ó Guð, mun standa að eilífu og tilskipanir þínar eru góðar og réttlátar.
9Guð, þú elskar réttlætið en hatar ranglætið, þess vegna hefur Guð þinn veitt þér meiri gleði en nokkrum öðrum.“
10Guð kallaði hann einnig „Drottin“ og sagði: „Drottinn, í upphafi skapaðir þú jörðina og himnarnir eru verk handa þinna.
11Þeir munu leysast upp og hverfa, en þú verður áfram. Þeir munu slitna eins og gömul flík,
12sem þú dag einn leggur frá þér og færð þér nýja. Sjálfur munt þú aldrei breytast og ævi þín engan endi taka.“
13Hefur Guð nokkurn tíma sagt slíkt við engil, sem hann segir við son sinn: „Sittu hér í heiðurssætinu við hlið mér, þar til ég hef lagt alla óvini þína að fótum þér“?
14Nei, því englarnir eru aðeins andlegir sendiboðar Guðs, sendir til hjálpar og aðstoðar þeim, sem erfa eiga hjálpræði hans.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath