Kristni
til baka

I. Tímóteusarbréf 1

1Frá Páli, sem eftir skipun Guðs, frelsara okkar og Drottins Jesú Krists, er sendiboði Jesú Krists – sem er von okkar.

2Til Tímóteusar. Tímóteus, þú sem ert mér sem sonur í trúnni á Drottin. Guð faðir og Drottinn Jesús Kristur auðsýni þér kærleika og miskunn og gefi þér frið í hug og hjarta.

3Ég endurtek það sem ég sagði áður en ég fór frá Makedóníu: Vertu kyrr í Efesus og þaggaðu niður í þeim mönnum sem fara með rangar kenningar. Reyndu að binda enda á þessar goðsagnir og helgisögur og þær hugmyndir þeirra, að hægt sé að frelsast með því að vinna sér hylli hjá endalausri röð engla sem leiði menn upp til Guðs. Þetta eru fáránlegar hugmyndir, sem aðeins vekja þrætur í stað þess að benda fólki á leið trúarinnar, eins og Guð ætlaðist til.

5Markmið kristinnar kenningar er að menn fyllist sönnum kærleika, hafi góða samvisku og eignist sterka trú.

6Þessir menn hafa misst sjónar á þessu markmiði og nú eyða þeir tímanum í þras og heimskulegar vangaveltur.

7Þá langar til að afla sér viðurkenningar sem fræðimenn í lögum Móse, en þeir hafa bara ekki minnstu hugmynd um efni þeirra.

8Lög þessi eru góð, ef þau eru notuð eins og Guð ætlaðist til.

9Þau voru alls ekki skrifuð fyrir réttláta menn, sem frelsast hafa frá syndinni, heldur fyrir syndara, sem eru óvinir Guðs. Þau voru ætluð lögleysingjum, morðingjum og öðrum vanheilögum syndurum.

10Þau voru fyrir hórkarla, kynvillinga, mannræningja, lygara og alla aðra sem lifa í andstöðu við gleðiboðskapinn, sem góður Guð gaf okkur og mér var falið að boða.

12Ég þakka Drottni Jesú Kristi, að hann skyldi velja mig í hóp sendiboða sinna og gera mig styrkan í trúnni,

13Mig, sem margoft hafði hætt hann og spottað. Ég ofsótti þá sem á hann trúðu og olli þeim eins miklu tjóni og ég frekast gat. En Guð miskunnaði mér, því að ég vissi ekki hvað ég gerði, enda þekkti ég þá ekki Krist.

14Drottinn sýndi mér mikla miskunn, því hann kenndi mér að treysta sér og síðan fyllti hann mig kærleika sínum.

15Það, að Jesús Kristur kom í heiminn til að frelsa synduga menn, er satt og ég vildi að allir fengju að heyra það og trúa. Sjálfur var ég mesti syndarinn.

16En Guð miskunnaði mér til að Kristur Jesús skyldi sýna mér þolinmæði og langlyndi sitt, til vitnisburðar öðrum syndurum sem eignast trú á hann.

17Guði sé lof og dýrð um aldir alda! Hann er hinn ódauðlegi og ósýnilegi, konungur eilífðarinnar. Enginn er Guð nema hann. Amen.

18Tímóteus, ég ætla að minna þig á spádómsorðin sem voru töluð til þín, en samkvæmt þeim skaltu berjast hinni góðu baráttu trúarinnar og hafa góða samvisku. Sumir hafa gert ýmislegt gegn betri vitund og syndgað af ásettu ráði. Það er reyndar ekkert undarlegt þótt fólk sem þannig ögrar Guði, falli fljótt frá trúnni á Krist.

20Hýmeneus og Alexander eru dæmi um slíka menn. Ég varð að gefa þá Satani á vald til refsingar, svo að þeim lærðist að lítilsvirða ekki nafn Krists.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath