I. Korintubréf 8
1Næst er það spurning ykkar um neyslu þess sem fórnað hefur verið skurðgoðum. Um þetta mál finnst öllum sitt svar vera hið eina rétta. En þótt við þykjumst hafa vit á öllu, þá er kærleikurinn nauðsynlegur til að efla kirkjuna.
2Telji einhver sig vita svör við öllu, þá sýnir hann með því fáfræði sína.
3Sá einn, sem elskar Guð, er opinn og móttækilegur fyrir þekkingu frá Guði.
4Nú, hvað um það? Ættum við að neyta kjöts sem fórnfært hefur verið skurðgoðum? Við vitum öll að skurðgoð er ekki raunverulegur Guð, það er aðeins einn Guð og enginn annar.
5Sumir segja að til séu fjölmargir guðir, bæði á himni og jörðu.
6En við vitum að Guð er aðeins einn, faðirinn, sem skapaði alla hluti, okkur líka, og einn Drottinn Jesús Kristur, sem allt var skapað fyrir og gefur okkur líf.
7Samt gera sumir kristnir menn sér ekki grein fyrir þessu. Alla sína ævi hafa þeir vanist því að hugsa sér skurðgoð sem lifandi máttarvöld og trúað því að kjöti, sem fórnað er skurðgoðunum, sé raunverulega fórnað lifandi guðum. Þegar þeir svo neyta slíks kjöts, veldur það þeim áhyggjum og særir viðkvæma samvisku þeirra.
8Gleymið því ekki, að Guð lætur sig engu skipta hvort við borðum slíkt kjöt eða ekki, það gerir okkur hvorki gott né illt.
9En gætið þó að er þið notið frelsi ykkar og borðið þennan mat, að þið leiðið ekki afvega einhvern kristinn bróður, eða systur, sem hefur viðkvæmari samvisku en þið.
10Sjáið nú til, þetta getur gerst: Einhver sem telur rangt að neyta fórnarkjöts, sér þig – sem veist að það er skaðlaust borða það, þá mun hann líkja eftir þér, þótt honum finnist það vera rangt.
11Með þekkingu þinni (um að neysla þess sé skaðlaus) veldur þú viðkvæmum trúbróður miklum andlegum skaða, manni sem Kristur dó fyrir.
12Það er synd gegn Kristi, að syndga gegn trúbróður með því að hvetja hann til einhvers sem honum finnst rangt.
13Ef neysla kjöts, sem fórnað hefur verið skurðgoðum, leiðir trúbróður afvega, mun ég ekki neyta þess svo lengi sem ég lifi, til þess að ég valdi honum ekki slíku tjóni.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath