I. Korintubréf 5
1Það er á allra vörum að viðbjóðslegir hlutir eigi sér stað á meðal ykkar, já verri en meðal nokkurra heiðingja – að í söfnuði ykkar sé maður sem lifir í synd með konu föður síns.
2Eruð þið enn jafn montin og „andleg“? Hvers vegna fyllist þið ekki heldur hryggð og blygðun og gerið gangskör að því að víkja þessum manni úr söfnuði ykkar?
3Þótt ég sé ekki hjá ykkur, þá hef ég hugsað mikið um þetta og í nafni Drottins Krists, hef ég nú þegar ákveðið hvað gera skal, rétt eins og ég væri þarna hjá ykkur. Kallið saman fund safnaðarins – kraftur Drottins Jesú mun vera með ykkur er þið komið saman, og ég mun verða viðstaddur í andanum –
5og víkið þessum manni úr samfélagi kirkjunnar í hendur Satans, honum til refsingar, í þeirri von að sál hans frelsist við endurkomu Jesú Krists.
6Það er þokkalegt eða hitt þó heldur að þið skulið vera að hrósa ykkur af dyggðum ykkar og látið slíkt samt eiga sér stað! Vitið þið ekki að sé einum manni leyft að halda áfram að syndga, munu brátt allir flekkast?
7Fjarlægið þetta illkynjaða mein úr ykkar hópi svo að þið getið verið hrein. Kristi, guðslambinu, hefur verið slátrað fyrir okkur.
8Höldum því hátíð með honum og styrkjumst í kristilegu líferni. Snúum algjörlega baki við hinu sýkta, gamla líferni með öllu þess hatri og illsku. Höldum hátíð með hreinu, ósýrðu brauði hreinleikans og sannleikans.
9Í bréfinu, sem ég skrifaði ykkur, sagði ég að þið skylduð halda ykkur frá vondu fólki.
10En þegar ég sagði það, átti ég ekki við trúleysingja, sem lifa í synd eða ágjarna svindlara og hjáguðadýrkendur, því það er útilokað að lifa í þessum heimi án þess að eiga einhver samskipti við slíkt fólk.
11Ég átti við að þið eigið ekki að blanda geði við neinn sem telur sig vera bróður í trúnni, en er saurlífismaður eða svindlari, hjáguðadýrkari eða drykkjumaður eða ágjarn. Þið ættuð ekki einu sinni að neyta matar með þess háttar manni.
12Það er ekki okkar að dæma þá sem utan kirkjunnar eru. En vissulega er það okkar að dæma þá sem eru í kirkjunni og sem syndga á þennan hátt.
13Guð einn dæmir þá sem eru utan kirkjunnar en þið verðið sjálf að dæma þennan mann og reka hann úr söfnuðinum.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath